Fögnum vorkomu og fegrum umhverfið
Grænn apríl stóð fyrir átaki við hreinsun höfuðborgarsvæðisins sunnudaginn 22. apríl og hvatti fólk til þess að fylla svarta ruslapoka af drasli úr borgarlandinu. Reykjavíkurborg mun sækja ruslapokana ef þess er óskað.
Margir hafa hugað að nánasta umhverfi sínu í tilefni af því að nú er Grænn apríl. Svarti pokinn eða umgengni er okkar mál, er glæsilegt framtak hjá aðstandendum Græns apríls. Í tilefni þess voru íbúar höfuðborgarsvæðisins hvattir til þess að taka höndum saman við hreinsun. Átakið fólst í því að sem flestir færu út sunnudaginn 22. apríl klukkan 12.30 með einn svartan ruslapoka og fyltu hann af rusli sem liggur víða á götum og opnum svæðum eftir veturinn. Margar hendur vinna létt verk.
Upplýsingar:
Reykjavíkurborg sækir ruslið.
Bílar á vegum borgarinnar sækja poka ef þess er óskað og verður hægt að hringja í símaver Reykjavíkurborgar milli 10.00 - 17.00. Símanúmerið er 4 11 11 11. Einnig er hægt að senda ábendingu á ábendingavefinn http://reykjavik.is/abendingar. Fylgst verður með ábendingum sem sendar verða inn. Tekið skal fram að hér er ekki átt við vorhreinsun þar sem borgin safnar saman garðaúrgangi heldur er einungis átt við rusl sem finnst á götum og á opnum svæðum.
Samkvæmt veðurspá mun viðra vel til ruslatínslu á sunnudaginn, heiðskírt, gola og um átta stiga hiti. Göngum út í sumarið sunnudaginn 22. apríl, 2012 - í Grænum apríl - klukkan 12.30 og gerum hreint fyrir okkar dyrum.
Nemendur Hagaskóla riðu á vaðið í vorhreinsun og tóku nánasta umhverfi í gegn á síðasta vetrardegi en myndirnar eru þaðan.
Á fésbókarsíðu átaksins er sagt frá því að Sportkafarafélag Íslands muni taka til í kringum húsnæði sitt í Nauthólsvíkinni. Það félag skorar á nágranna sína í Landhelgisgæslunni, Siglingaklúbbnum Brokey, ÍTR, Nauthól og HR að gera slíkt hið sama. Í þessu átaki gætu fyrirtæki ekki síður hugað sérstaklega að lóðum sínum.