Fjör í jólaskóginum í Ráðhúsi Reykjavíkur

Jón Gnarr, borgarstjóri, opnaði jólaskógurinn í Ráðhúsinu með pompi og prakt í gær og var sannkölluð hátíðarstemmning í salnum. Tjarnarsalurinn hefur breyst í ævintýraland jólanna með 70 jólatrjám og er þema skógarins í ár gamli tíminn, í tilefni af Evrópuári aldraðra. Jólatrén og salurinn hafa verið skreytt með fallegum munum frá Árbæjarsafni og jólaskrauti hönnuðu og framleiddu af eldri borgurum frá Reykjavík. Ráðhúsið er nú heimili hins árlega Piparkökuhúsaleiks Kötlu og samblanda af greni og- piparkökuilmi skapa ósvikna og notalega jólastemmingu.

Gerðubergskórinn söng jólalög undir stjórn Kára Friðrikssonar við undirleik Árna Ísleifs og kunnu gestir og gangandi vel að meta fallegan sönginn sem barst um húsið. Svavar Knútur, tónlistarmaður, tók svo við og flutti nokkukr lög og að því loknu þöndu nokkrir harmonikkusnillingar nikkuna. 

Piparkökuhúsin verða til sýnis til 21. desember, en verðlaunaafhending fyrir fallegustu húsin fer fram sunnudaginn 16. desember klukkan 15:00.

Klukkan 17:30 mun svo Ungklassík, sem er skipuð ungu tónlistarfólki frá tónlistarskólum í Reykjavík, spila jólalög.  

Það verður sannkölluð jólastemning í jólaskóginum í Ráðhúsinu alla daga og eru allir velkomnir. Sjá má ítarlega dagskrá í viðburðadagatali Reykjavíkurborgar og jólaborgarinnar.