Fjölsótt ráðstefna um læsi í leikskólum

Bekkurinn var þétt setinn á ráðstefnu um læsi í leikskólum sem haldin var 31. október í Gerðubergi í samstarfi skóla- og frístundasviðs og Bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur UNESCO. Þar komu m.a. fram afar áhugaverðar niðurstöður á rannsókn á læsi barna í lok leikskóla og upphafi grunnskóla. Ráðstefnan var haldin undir fyrirsögninni Læsi í leikskóla - orðið er frjálst! og má segja að með henni hafi formlega lokið lestrarhátí reykjavíkur í leikskólum borgarinnar.

Meðal fyrirlesarar var Dr. Freyja Birgisdóttir lektor sem greindi frá niðurstöðum viðamikillar rannsóknar á læsi 4 - 8 ára barna og mikilvægi leikskólans og þess náms sem þar fer fram í þróun læsis hjá yngstu börnunum. Niðurstöður rannsóknarinnar eru mjög viðamiklar en þær sýndu m.a. að ekki er marktækur munur á færni barna eftir kyni. Þá lagði Freyja áherslu á að grunnur að lesskilningi barna væri lagður í leikskólanum, þar ætti lestrarnámið að hefjast með markvissari hætti en nú er.

Halldóra Guðmundsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Drafnarborg/Dvergasteins sagði frá fjölbreyttri vinnu með vögguvísur sem leikskólinn vann nú í október í tilefni lestrarhátíðar og Guðrún Finnsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Ösp fjallaði um málrækt í leikskóla fjölmenningar þar sem lögð er áhersla á málrækt fyrir allan barnahópinn í fjölbreyttum aðstæðum í námi og leik.



Þá sagði Oddný Sturludóttir formaður skóla- og frístundaráðs frá mótun vinnu við mótun læisstefnu fyrir leikskóla í Reykjavík og Ragnheiður Gestsdóttir fjallaði um árhirf myndskreytinga í erindinu „Mynd er mál“.  Pollapönkararnir Halli og Heiðar fluttu Draumalandið, vögguvísu sem samin var sérstaklega fyrir leikskólana í borginni í tilefni af Lestrarhátíð og fengu þeir til sín börn úr leikskólanum Hólaborg til að aðstoða við flutninginn.



Þórarinn Eldjárn tók saman helstu atriði þingsins og sagðist m.a. hafa komist að því að mikið vatn hefði runnið til sjávar í þeirri vinnu sem væri verið að vinna með börnum í leikskólum borgarinnar í tengslum við læsi. Á þinginu spunnust líflegar umræður um að mikilvægt væri að byggja á þeirri vinnu sem fram fer í leikskólunum þegar börnin færðust yfir í grunnskólann og að bæta þyrfti samræðu skólastiganna um málrækt og læsi leikskólabarna.