Fjölskyldutími í KR - opinn íþróttatími
Í vetur ætlar KR að bjóða uppá fjölskyldutíma, þar sem allir eru velkomnir. Það er tími þar sem fjölskyldan getur mætt og tekið þátt í íþróttaiðkun á eigin forsendum óháð aldri. Farið verður í þær íþróttagreinar sem KR býður upp á og mun leiðbeinandi frá viðkomandi deild innan KR hverju sinni vera með leiðsögn. Boðið verður uppá: Borðtennis, körfubolta, knattspyrnu, handbolta, badminton og taekwondo/glímu. Lokatíminn fyrir áramót verður frjáls.
Fjölkyldutíminn verður í B- sal KR-heimilinsins á sunnudögum frá 17.10 - 18.00 og er fyrsti tíminn 16. september n.k., síðasti tíminn er 9. desember fyrir áramót. Nánar auglýst síðar um tíma eftir áramót.Tíminn er opinn öllum í Vesturbænum að kostnarlausu.
Hreyfing er jákvæð fyrir alla og er þetta mögulega fyrsta skref margra til íþróttaþátttöku. Ekki má gleyma félagslega þættinum sem er mjög mikilvægur.
Það eru allir velkomnir en börn undir 18 ára aldri verða að vera í fylgt með fullorðnum.
Upplýsingar: Stefáni Arnarsyni, íþróttafulltrúa KR, stefan@kr.is sími: 699 4555 og Herði Heiðari Guðbjörnssyni, íþrótta- og tómstundaráðgjafa, Vesturgarði, hordur.heidar.gudbjornsson@reykjavik.is sími: 664 7782.
Vonumst til þess að sjá sem flesta mæta og taka þátt og eiga góðar stundir saman.
Knattspyrnufélag Reykjavíkur og Þjónustumiðstöð Vesturbæjar- Vesturgarður.