Fjölskyldustemming í vetrarfríi - njótum frítímans saman

Vetrarfrí verður í flestum grunnskólum og frístundaheimilum borgarinnar dagana 18. 21. og 22. október. Frístundamiðstöðvar og sundlaugar borgarinnar bjóða upp á margvíslega skemmtun og frístundastarf í vetrarfríinu.



Á föstudaginn 19. október verður meðal annars verður fjölskylduskemmtun á útivistarsvæðinu við Gufunesbæ í Grafarvogi og Wipeout keppni Frostaskjóls í Vesturbæjarlaug. Mánudaginn 22. október verður svo skemmtileg dagskrá í Laugardalslaug á vegum Kringlumýrar kl. 12.30 - 15.00 og Hrekkjavökuskemmtun fjölskyldunnar í Miðbergi í Breiðholti.

Þá má einnig benda á skemmtilega afþreyingakosti í hverfum borgarinnar á ,,Ævintýri á heimaslóðum“ þar sem búið er að kortleggja hverfin og safna saman fjölmörgum hugmyndum og tillögum að því sem hægt er að gera í borginni okkar. Reykjavíkurborg býður uppá endalausa möguleika og ævintýrin leynast víða. Útivistaperlur, söfn og aðrir skemmtilegir staðir liggja á hverju strái.



Þá eru sundlaugar borgarinnar opnar eins og venjulega þar sem hægt er að eiga gæðastundir.

Góða skemmtun í vetrarfríinu!