Félag ábyrgra hundaeigenda afhendir borgarstjóra stefnuskrá sína

Félag ábyrgra hundaeigenda, sem stofnað var fyrr á þessu ári, afhenti Jóni Gnarr borgarstjóra stefnuskrá sína við Ráðhús Reykjavíkur síðastliðinn föstudag. 

Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að hundaeign á höfuðborgarsvæðinu hafi meira en tvöfaldast síðastliðinn áratug og félag sem þetta sé því nauðsynlegt til að sameina hundaeigendur, vera málsvari hundaeigenda og hunda og hvetja til ábyrgara hundahalds. Félagsmenn eru nú þegar orðnir á þriðja hundrað talsins. Félag ábyrgra hundaeigenda er öllum opið og nálgast má nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins www.fah.is.