Fékk glæsilegt reiðhjól í verðlaun fyrir bestu ljósmyndina

Marta Pardej, tók við glæsilegu reiðhjóli í dag í verðlaun fyrir bestu myndina í ljósmyndsamkeppni Samgönguviku Reykjavíkurborgar 2012 Á réttri leið - svona ferðast ég. Verðlaunamyndina „Gleði hjólreiðum“ tók eiginmaður hennar Pawel Pardej, af sex ára syni þeirra, Artur, á fullri ferð á hjólinu sínu. Pawel ákvað að gefa eiginkonu sinni reiðhjól þar sem hún var sú eina í fjölskyldunni sem átti ekki hjól. Marta fór í gær í verslunina Örninn og valdi sér kvenreiðhjól með körfu og fékk hún það afhent í dag ásamt viðurkenningarskjali. Marta var hæstánægð og sagði hjólið koma í góðar þarfir, fjölskyldan gæti farið saman út að hjóla þegar vel viðraði.

Í 2. sæti varð myndin „Sólarupprás“ eftir Svein Benediktsson, í 3. Sæti varð myndin „Amma hefur engu gleymt“ sem Sesselja Traustadóttir sendi inn. Þá voru ennfremur veitt verðlaun fyrir þá mynd sem fékk flest „like“ og það var myndin „Æfing“ frá Rúnu Völu Þorgrímsdóttur. Þau fengu öll sund- og strætókort í verðlaun.

Reykjavíkurborg óskar verðlaunahöfunum til hamingju og þakkar fyrir góða þátttöku í ljósmyndasamkeppninni.