Endurbætur í Laugardalslaug halda áfram

Hafist hefur verið handa við viðamiklar framkvæmdir á búningsklefum laugarinnar. Í fyrsta áfanga þarf að loka karlaklefa á meðan framkvæmdum þar stendur og áætlað er að ljúka því  fyrir 1. febrúar. Þá verður hafist handa við framkvæmdir í kvennaklefa sem áætlað og munu þeim framkvæmdum verða lokið í lok apríl.

Á meðan á þessu stendur þá er búningsklefum skipt upp fyrir bæði kyn og því aðeins þrengra en fólk á að venjast. Við viljum benda fólki á að nota nýja útiklefa við enda sjópotts, þar sem aðgengi er að læstum skápum og sturtum í aðskildum klefum. Við munum gera okkar besta til að veita sem besta þjónustu á meðan á þessu stendur og biðjum gesti um að láta okkur vita ef eitthvað má betur fara