Einholt - Þverholt í uppbyggingu

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að auglýsa nýtt deiliskipulag á reitnum Einholt - Þverholt sem afmarkast af Einholti, Háteigsvegi, Þverholti og Stórholti samanber samþykkt skipulagsráðs frá 17. október síðastliðnum. Búseti svf. hyggst reisa á milli 200 - 230 íbúðir á reitnum.

Hægt verður að gera athugasemdir við skipulagið í sex vikur eftir að auglýsingin birtist og verður þeim svarað efnislega.

Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu íbúðabyggðar á 3 - 5 hæðum á suðurhluta reits en norðurhluti reits er að mestu óbreyttur. Á suðurhluta reits er gert ráð fyrir fjölbreyttum gerðum íbúða og bílageymslum á tveimur hæðum í kjallara

Deiliskipulagið er unnið á vegum Búseta svf. og Reykjavíkurborgar. Gerð var lýsing fyrir deiliskipulagið unnin af ASK arkitektum dagsett í júní 2012 þar sem áherslur skipulagsyfirvalda varðandi reitinn koma fram. Lýsingin hefur verið kynnt

almenningi. Haldinn var opinn kynningardagur þann 19. maí 2012 þar sem hagsmunaaðilum var boðið að koma og kynna sér drög að tillögu að deiliskipulagi fyrir reitinn. Annar kynningarfundur var haldinn 6. september 2012 og þar var deiliskipulagstillagan kynnt fyrir hagsmunaaðilum. Frestur til athugasemda við tillöguna var til 20. september.

Á reitnum er gert ráð fyrir fjölbreyttri hönnun og útfærslu nýbygginga þar sem um er að ræða byggingar í grónu hverfi og er markmiðið að yfirbragð byggðarinnar verði ljóst. Hver stigagangur skal hafa mismunandi yfirbragð til að stuðla að fjölbreytni. Mikilvægt er að byggingarnar myndi ekki einsleitan og samfelldan vegg en það næst fram með því að brjóta upp húshliðar með litum, efni og útbyggingum.