Einholt - Þverholt, hagsmunaaðilakynning
Fimmtudaginn 6. september kl. 17 - 18.15 í Ofnasmiðju-húsinu Háteigsvegi 7, 105 Reykjavík verður kynnt tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir reitinn sem afmarkast af Einholti, Stórholti, Þverholti og Háteigsvegi. Veittur verður frestur til athugasemda til 20. september 2012. Athugasemdir skal senda á netfangið skipulag@reykjavik.is. Athugasemdum og ábendingum verður ekki svarað skriflega heldur eru þær innlegg inn í áframhaldandi vinnu. Fundurinn er öllum opinn og við vonumst til að sjá sem flesta.
Eftir að unnið hefur verið úr athugasemdum verður tillagan auglýst og þá gefst hagsmunaaðilum tækifæri til að koma athugasemdum á framfæri í annað sinn. Þá verður tillagan auglýst í 6 vikur.