Drullumall - tónleikaröð fyrir unglinga
Tónlistarmenning reykvískra unglinga blómstrar þessi misserin. Félagsmiðstöðvar Kamps í miðbænum standa fyrir tónleikaröðinni Drullumalli fyrir 13-16 ára unglinga einu sinni í mánuði allt skólaárið. Þar hafa margar hljómsveitir komið fram, s.s. Retro Stefson, Friðrik Dór, Botnleðja, Prinspóló og fleiri.
Markmiðið með Drullumalli er að kynna það sem er að gerast í íslenskri tónlist og skapa vettvang fyrir unglingahljómsveitir til að koma fram með reyndari böndum í öruggu umhverfi félagsmiðstöðvarinnar. Auk þess er hugmyndin að brúa bilið milli þess að vera unglingur og tónlistarmaður og hvetja þannig ungt fólk til að semja og flytja eigin tónlist. Frítt er fyrir unglinga í fylgd með sinni félagsmiðstöð inn á alla tónleikana, en þeir eru haldnir í risinu í Austurbæjarskóla.
Hægt er að fylgjast með næstu viðburðum á Facebook-síðu Drullumallsins.
Auk þess heldur Drullumallsnefnd unglinga í Kampi úti Youtube-rás með upptökum frá tónleikunum.
Verkefnið Drullumall fékk á dögunum hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs.