Á döfinni í Gerðubergi haustið 2012
Bókmenntatengdir viðburðir og sýningar setja sterkan svip á viðburðadagskrá Gerðubergs þetta haustið. Fimmtudaginn 23. ágúst kl. 17 opnar bandaríska listakonan Rebecca Goodale sýninguna Rökkurljóð og sögur. Um er að ræða bókverk sem hafa sterka skírskotun til náttúrunnar en síðustu árin hafa dýr og plöntur sem eru í útrýmingarhættu í heimabæ hennar Maine átt hug hennar allan. Rebecca heldur einnig helgarnámskeið fyrir hönnuði, lista- og handverksfólk þar sem hún kynnir óendanlega möguleika við formgerð og innihald bókverka.
Á sama tíma verður opnuð ný sýning í Safnarahorni Gerðubergs. Lesandi er sýning á hluta af minjagripasafni Sigrúnar Klöru Hannesdóttur, bókaunnanda og fyrrverandi landsbókavarðar. Safn hennar samanstendur af afar fjölbreyttum munum, svo sem styttum, póstkortum, bókamerkjum, myndverkum og postulínsplöttum sem eiga það sammerkt að sýna lesendur með bók í hönd. Sigrún hefur sankað þessum munum að sér á ferðalögum sínum vítt og breitt um heiminn.
Mánudagsspjall og spekúlasjónir er heiti á nýrri dagskrárröð um umhverfis- og skipulagsmál þar sem megináhersla er lögð á Breiðholtið og umhverfi þess. Um er að ræða óformlegan vettvang til að koma saman og taka þátt í umræðum um ýmis málefni líðandi stundar. Mánudagsspjallið er haldið fjórða mánudag hvers mánaðar. Í september kynna fulltrúar Hollvinasamtaka Elliðarárdalsins verkefni og hugðarefni samtakanna og í október fjalla arkitektarnir Ólafur Mathiesen og Ólöf Örvarsdóttir um hugmyndafræði nýs hverfaskipulags borgarinnar og taka dæmi úr Breiðholti.
Viðburðaraðirnar á miðvikudagskvöldum, Handverkskaffi, Stefnumótakaffi, Heimspekikaffi og Bókakaffi, hafa náð að festa sig í sessi. Viðfangsefni og þemu þessara kvölda eru afar fjölbreytt. Þau laða að sér breiðan hóp fólks með mismunandi áhugasvið því þarna er að finna eitthvað fyrir alla. Þemu handverkskaffisins verða m.a. hárfléttun, spjaldvefnaður og íkonagerð. Gestir eiga stefnumót við Harald Sigurðsson eldfjallafræðing, Gissur Pál Gissurarson tenór og Emily Lethbridge sem ferðast hefur um söguslóðir Íslendingasagna í gömlum sjúkrabíl. Gunnar Hersveinn heimspekingur mun fá til sín góða gesti og ræða um lífið og tilveruna. Hann leggur út frá andstæðum hugtökum eins og gæfuspor / feilspor og viska / fáviska. Og síðast en ekki síst ber að nefna Bókakaffið sem Jón Björnsson sálfræðingur og rithöfundur leiðir á haustmisseri. Hann fær til sín góða gesti og fjallar m.a. um bækur þar sem tré hafa ákveðna þýðingu, gluggað verður í Gerplu og Heimskringlu og fjallað um Ólaf Noregskonung Haraldsson sem var þekktur trúboði, ferðalangur, víkingur, hrotti, og dýrlingur!
Systurnar Sigrún og Ólöf Einarsdætur sem hafa unnið sér verðugan sess í heimi glers og textíls opna samsýninguna Ummyndun laugardaginn 8. september. Þar tefla þær saman sínum ólíku miðlum og sækja innblástur í ótamin öfl náttúru Íslands.
Einar Jónsson ljósmyndari opnar sýninguna Utan Hringbrautar í kaffihúsinu og alþýðulistamaðurinn Kristján Jón Guðnason sýnir glaðleg og litrík málverk í naíviskum anda í Boganum.
Davíð Örn Halldórsson myndlistarmaður hefur vakið athygli fyrir málverk sem einkennast af kraftmikilli notkun lita og spennandi samruna forma og frásagnarkennds fantasíuheims. Hann hefur unnið bæði málverk og rýmisverk sem hafa sterka skírskotun til graffítíverka en falla á einstæðan hátt að myndlistarhefðinni um leið og þau vísa sterkt í götulistina. Davíð Örn þekkir vel til Gerðubergs enda óx hann úr grasi í Breiðholti. Hann mun leggja efri hæðina undir sýningu sína Ilmvatnsáin has minni í nóvember. Davíð Örn mun jafnframt virkja frumkraft 16-18 ára ungmenna í spennandi myndlistarsmiðju sem haldin verður á sýningartímabilinu.
Ýmislegt verður í boði fyrir yngri kynslóðina. Dans vil ég heyra er skemmtileg og fræðandi kveðskaparsmiðja fyrir 3-7 ára börn um íslenska sagnadansa og lausavísur. Umsjón með smiðjunni hafa Eva María Jónsdóttir sem gaf út samnefnda bók á síðasta ári og með henni verður Nanna Hlíf Ingvadóttir tónmenntakennari.
Vertu með! er fjölbreytt dagskrá þar sem börn af erlendum uppruna stíga á stokk til að syngja, leika tónlist og dansa. Dagskrá fyrir alla fjölskylduna sem haldin er í samstarfi við Móðurmál – Samtök um tvítyngi.
Tónlistin verður á sínum stað. Boðið verður upp á tvenna hádegistónleika undir merkjum Klassíkur í hádeginu en þar mun Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari koma fram ásamt Ara Þór Vilhjálmssyni fiðluleikara og Áshildi Haraldsdóttur flautuleikara. Dagskráin Syngjum og kveðum verður áfram á þjóðlegu nótunum og munu Bára Grímsdóttir og Chris Foster leiða þessar ljúfu tónlistar- og söngstundir ásamt góðum gestum. Ragnheiður Gröndal, Guðmundur Pétursson og Birgir Baldursson munu síðan leiða gesti inn í anda aðventunnar í lok nóvember á tónleikum undir yfirskriftinni Í opnum örmum tónlistargyðjunnar.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg er lifandi hús þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Í húsinu er starfrækt bókasafn, félagsstarf og kaffihús auk þess sem leigðir eru út salir og fundarherbergi fyrir námskeið, ráðstefnur og fleira. Dagskrá Gerðubergs er að finna í sérstöku viðburðakorti sem gefið er út tvisvar á ári og er jafnframt aðgengileg á vefsíðunni www.gerduberg.is þar sem veittar eru nánari upplýsingar um viðburði og opnunartíma.
Þeir sem vilja fá nánari kynningu á dagskrá þessa misseris eru velkomnir á kynningarfundi sem haldnir verða
þriðjudaginn 4. september kl. 13-14 og kl. 16-17.
Verið velkomin í Gerðuberg – griðastað góðra hugmynda!