Café Lingua – lifandi tungumál í Borgarbókasafni
Mánudaginn 26. nóvember kl. 17 mun Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og velgjörðarsendiherra tungumála Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), opna Café Lingua í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15.
Markmiðið með Café Lingua er að skapa tækifæri fyrir fólk til að skerpa á tungumálakunnáttu sinni, kynnast öðrum tungumálum og menningarheimum, rækta móðurmálið, hitta aðra heimsborgara og spjalla saman í notalegu umhverfi.
Á opnun Café Lingua verður hægt að fara á „hraðstefnumót“ við ýmis tungumál. Gestum gefst tækifæri til að kynna sér tungumál og spjalla við fulltrúa þeirra. Café Lingua verður framvegis á mánudögum kl. 17 - 18.
Þú getur séð viðburðinn á Facebook og skráð þig í Café Lingua-hópinn á Facebook.
Allir eru velkomnir og þátttaka ókeypis.