Börn segja borgarstjóra frá réttindum sínum

Á annað hundrað börn af frístundaheimilum í Miðborg og Hlíðum gengu fylktu liði á fund borgarstjóra í dag og kynntu honum réttindi barna. Þau gáfu honum bók sem þau höfðu sjálf útbúið með helstu ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Börnin hafa undanfarna daga unnið að ýmsum verkefnum í tengslum við Barnasáttmálann með áherslu á að öll börn séu mikilvæg, eigi rétt á að tjá sínar skoðanir og að á þau sé hlustað. Þau gengu með spjöld með ýmsum slagorðum, s.s. Öll börn eiga rétt á vináttu. Þau lögðu upp í Réttindagönguna við Hallgrímskirkju klukkan þrjú í dag og enduðu gönguna í Ráðhúsinu þar sem borgarstjóri tók á móti þeim.