Borgin leitar að rekstraraðilum neyðargistiskýla

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitar nú að áhugasömum aðilum til að taka að sér rekstur neyðargistiskýla fyrir  konur  og karla.  Um er að ræða úrræði sem rekin hafa verið í Reykjavík á undanförnum árum en samningar við núverandi rekstraraðila renna út í mars 2013. Hlutverk neyðargistiskýla er að veita húsnæðislausum Reykvíkingum næturgistingu. Þjónustusamningur til 3ja ára  verður gerður við þann aðila sem valinn verður til að reka þjónustuna. Ekki er skilyrði að sami aðili reki bæði gistiskýlin.

Leitað er eftir einstaklingum eða félagasamtökum til að sjá um daglegan rekstur og þjónustu auk þess að hafa reynslu af þjónustu við fólk sem á við margháttaða félagslega erfiðleika að stríða sér í lagi  fólki sem á við áfengis- og vímuefnavanda að etja. Reykjavíkurborg leggur til húsnæði fyrir rekstur skýlanna. Umsóknarfrestur er til 14. janúar 2013.