Borgarsýn – þriðja tölublað ársins komið út

Kynningarritið Borgarsýn er komið út og er um að ræða þriðja tölublað ársins og það fjórða í heildina, en Borgarsýn kom fyrst út í nóvember 2011. Það er umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar sem gefur kynningarritið út og er tilgangurinn með útgáfunni fyrst og fremst að upplýsa borgarbúa um þau verkefni sem eru efst á baugi skipulagsmála hverju sinni.



Skoða Borgarsýn 4. tbl 2012 (PDF)  



Í þessu tölublaði af Borgarsýn er sagt frá niðurstöðum tveggja samkeppna. Annarsvegar hugmyndasamkeppni um framtíðarnýtingu Öskjuhlíðar og hinsvegar frá niðurstöðum hönnunarsamkeppni um götugögn tengt hjólreiðum. Fleiri samkeppnir eru í farvatninu eins og samkeppni um viðbyggingu við Sundhöll Reykjavíkur og framtíðarskipulag Háskólasvæðisins. Árið 2012 hefur verið fjörugt í borgarmótun og í blaðinu er fjallað um breytingar á deiliskipulagi í miðborginni.Um er að ræða svokallaða Hljómalindarreit og Brynjureit en þar er fyrirhuguð endurbygging gamalla húsa auk töluverðrar uppbyggingar. Einnig er í blaðinu kynnt nýtt deiliskipulag af reit sem afmarkast af Einholti og Þverholti en þar er fyrirhugð þétt íbúðarbyggð þar sem hæðir húsa taka mið af aðliggjandi byggð.



Aðalgreinin í blaðinu er þó um gömlu höfnina í Reykjavík. Næsta stóra uppbyggingarsvæði í borginni er einmitt þar en á því svæði mun rísa þétt og blönduð byggð sem tekur mið af stærðarhlutföllum eldri byggðar. Í skipulaginu er lögð áhersla á að færa byggðina nær hafinu og endurspegla þannig sögu borgarinnar, en borgin og höfnin voru áður órofin heild. Að lokum er vert að minnast á  að nú hafa sviðin þrjú er hafa með manngert umhverfi í borginni að gera verið sameinuð í eitt svið, umhverfis- og skipulagssvið.



Með reglulegri útgáfu kynningarrits um skipulagsmál vonast skipulagsyfirvöld til þess að borgarbúar verði betur upplýstir um þær áherslur sem uppi eru í þróun og ásýnd borgarinnar hverju sinni enda viðfangsefni sem kemur öllum við. Kynningarritið Borgarsýn er gefið út í 500 eintökum, en einnig aðgengilegt á vefnum. Ritstjórar Borgarsýnar eru Björn Ingi Edvardsson og Valný Aðalsteinsdóttir.



Eldri eintök af Borgarsýn:

Skoða Borgarsýn 1. tbl. 2011  

Skoða Borgarsýn 2. tbl. 2012  

Skoða Borgarsýn 3. tbl 2012