Borgarsýn - nýtt tölublað komið út
Kynningaritið Borgarsýn er nýkomið út og er um að ræða þriðja tölublað, en það er Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar sem gefur kynningarritið út. Tilgangur með útgáfunni er fyrst og fremst að upplýsa borgarbúa um þau verkefni sem eru efst á baugi skipulagsmála hverju sinni.
Skoða Borgarsýn 3. tbl. 2012 (PDF).
Í þessu tölublaði af Borgarsýn er töluvert fjallað um hinar ýmsar samkeppnir sem hafa verið haldnar að undanförnu sem og nokkrar samkeppnir sem eru í bígerð eða nýfarnar af stað. Tveggja þrepa hönnunarsamkeppni um Ingólfsorg – Kvosina lauk í sumar og niðurstaða hennar hefur orðið til þess að fleiri greinar hafa verið skrifaðar í dagblöð um skipulagsmál heldur en um langt skeið. Formlegt skipulagsferli er framundan og í því ferli má eiga von á frekari skoðanaskiptum um uppbyggingu á svæðinu sem og í miðborginni allri. Verkefnin „Torg í biðstöðu“ blómstruðu í sumar, en í þetta sinn voru biðstöðuverkefnin ekki eingöngu bundin við miðborgina heldur voru nokkur svæði í öðrum hverfum borgarinnar glædd lífi með margskonar uppákomum. Einnig nutu borgarbúar Laugavegarins í sumar sem göngugötu og þess að bílastæði breyttust í lifandi borgarrými.
Skipulags-og byggingarsvið Reykjavíkur hefur nú sameinast umhverfis-og samgöngusviði ásamt framkvæmdahluta framkvæmda og eignasviðs borgarinnar og því mun útgáfa Borgarsýnar framvegis vera á ábyrgð nýs umhverfis-og skipulagssviðs. Áherslan í umfjöllun Borgarsýnar mun þó áfram vera á skipulagsmál og verkefni sem þeim tengjast. Það er spennandi vetur framundan á vettvangi skipulagsmála. Með reglulegri útgáfu kynningarrits um skipulagsmál vonast skipulagsyfirvöld til þess að borgarbúar verði betur upplýstir um þær áherslur sem uppi eru í þróun og ásýnd borgarinnar hverju sinni enda viðfangsefni sem kemur öllum við. Kynningarritið Borgarsýn er gefið út í 500 eintökum, en einnig aðgengilegt á vefnum. Ritstjórar Borgarsýnar eru Björn Ingi Edvardsson og Valný Aðalsteinsdóttir.
Eldri eintök af Borgarsýn:
Skoða Borgarsýn 1. tbl. 2011.
Skoða Borgarsýn 2. tbl. 2012.