Borgarstjórn samþykkir stofnun öldungaráðs

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær stofnun sérstaks öldungaráðs í Reykjavík. Í tillögunni er gert ráð fyrir að ráðið fundi reglulega til að fjalla um málefni eldri borgara og verði borgarstjórn til ráðgjafar um þau. Það verði skipað eldri borgurum og hafi víðtækt samráð við félög og samtök eldri borgara í Reykjavík og aðra þá, sem láta málefni þeirra til sín taka. Að minnsta kosti árlega skulu fulltrúar úr öldungaráðinu funda með borgarfulltrúum. Skrifstofu borgarstjórnar er falið að móta tillögur um hlutverk, tilgang og skipan ráðsins í samstarfi við stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og stjórn samtaka aldraðra. Tillögurnar skal síðan leggja fyrir borgarstjórn til endanlegrar samþykktar.