Borgarstjórn heimilar sölu á 49% hlut í Gagnaveitu Reykjavíkur

Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í gær að veita stjórn Orkuveitu Reykjavíkur umboð til að hefja undirbúning að sölu á allt að 49% hlut í Gagnaveitu Reykjavíkur. Gagnaveitan hefur unnið að lagningu ljósleiðara í Reykjavík og víðar.

Eigendanefnd Orkuveitu Reykjavíkur hefur skilgreint kjarnastarfsemi  fyrirtækisins í samræmi við aðgerðaáætlun þess og hefur hún nú verið samþykkt af öllum eigendum sem eru Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð.

„Kjarnastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur felst í rekstri vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og fráveitu, sölu og framleiðslu á rafmagni og heitu og köldu vatni. Orkuveita Reykjavíkur getur nýtt þekkingu fyrirtækisins í þátttöku í öðrum veiturekstri, s.s. rekstri gagnaveitu, enda þjóni hann markmiðum eigenda og þátttakan hljóti samþykki þeirra.“

Þá hefur eigendanefndin samþykkt að markmið Reykjavíkurborgar og annarra eigenda sé að efla búsetuskilyrði og samkeppnishæfni atvinnulífs í sveitarfélögunum, traustir innviðir séu þar lykilþáttur og mikilvægi afkastamikillar gagnaveitu fari vaxandi.  Því vilja eigendur Gagnaveitunnar hafa hönd í bagga með þróun grunnnets samskipta, sem verður best tryggt með áframhaldandi virkum eignarhlut í opnu grunnneti sem hvetur til samkeppni þjónustuaðila, dregur úr hættu á offjárfestingu og rekið er með hóflegri arðsemi.

Að þessu tryggðu leggur eigendanefndin til að stjórn OR fái umboð til að hefja undirbúning að sölu 49% hluts í Gagnaveitu Reykjavíkur. Áframhaldandi meirihlutaeign Orkuveitu Reykjavíkur er ætlað að stuðla að því markmiði að tryggja hagstætt verð, opna samkeppni og meirihlutaeign almennings.

Eigendanefnd minnir þó á að endanlegar ákvarðanir stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur um leiðir við söluna skulu lagðar fyrir eigendur, samanber eigendastefnu Orkuveitu Reykjavíkur um veigamiklar og stefnumarkandi ákvarðanir.