Borgarstjóri var bingóstjóri
Jón Gnarr borgarstjóri tók að sér bingóstjórn á fjölmennu bingói í Hólabrekkuskóla í dag sem haldið var til styrktar Special Olympics. Það voru íþróttafélagið Ösp og Special Olympics sem stóðu fyrir fjáröflunarsamkomunni.
Að sögn borgarstjóra var þetta í fyrsta sinn sem hann tekur að sér að stýra bingói og kvaðst hann vel geta hugsað sér að stjórna fleiri slíkum í framtíðinni enda fórst honum verkefnið vel úr hendi.
Íþróttafólkið, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Þórdís Erlendsdóttir og Júlíus Pálsson voru á staðnum en þau munu keppa í parakeppni í listhlaupi á skautum á Special Olympics í Suður Kóreu.
Fjölmargir góðir vinningar voru í boði enda mörg fyrirtæki sem vilja styrkja ólympíufarana á Special Olympics sem haldnir verða í Suður Kóreu í byrjun árs 2013. Mikil eftirvænting og kátína ríkti í salnum á meðan borgarstjóri stýrði fimm röðum í bingóinu og afhenti vinninga jafnóðum.
Þá komu vígalegir víkingar í fullum herklæðum á svæðið og tóku borgarstjóra höndum en þeir voru nokkra stund að finna hann því krakkarnir á staðnum vildu ómögulega gefa upp hver væri borgarstjóri. Allt var það í gríni gert en borgarstjóri þakkaði ungviðinu kærlega fyrir að hafa haldið hlífiskildi yfir sér.