Borgarstjóri tendrar ljósin á jólatrénu á Austurvelli
Íbúar Oslóar færðu Reykvíkingum fyrsta grenitréð að gjöf fyrir rúmum sextíu árum en tréð hefur ævinlega hefur verið sett upp á Austurvelli. Hefð er fyrir því að borgarbúar fagni þessari vinargjöf fyrsta sunnudag í aðventu með hátíðlegum söng og skemmtilegum uppákomum.
Dagskráin á sunnudaginn hófst kl. 15.30 með leik Lúðrasveitar Reykjavíkur en í kjölfarið söng Dómkórinn nokkur lög undir stjórn Kára Þormar. Dag Wernø Holter sendiherra Noregs á Íslandi og Tone Tellevik Dahl formaður heilbrigðis- og félagsmálanefndar Oslóarborgar afhentu Reykvíkingum tréð að gjöf rétt og Jón Gnarr, borgarstjóri, flutti þakkarávarp. Hinn 6 ára norsk-íslenski Jörundur Ísak Stefánsson fékk þann heiður að tendra ljósin á trénu.
Aðrir góðir gestir birtust á sviðinu við Austurvöll. Skáldið Bragi Valdimar Skúlason frumflutti kvæði um Stúf og Karíus og Baktus kíktu við ofan úr Þjóðleikhúsi og hlökkuðu þeir mikið til jólanna. Hurðaskellir, Gluggagægir og Stúfur við, laumuðu sér í bæinn til að segja börnunum sögur og syngja jólalög.
Eimskip hefur frá upphafi flutt Oslóartréð til Reykjavíkur, borgarbúum að kostnaðarlausu. Borgarstjóri, Jón Gnarr tók þátt í að fella tréð í Solemskogen við Grefsen í Osló þann 7. nóvember s.l. en það var flutt frá Fredrikstad til Reykjavíkur. Tréð er rúmlega 12 metra hátt og skreytt fögrum ljósum, jólastjörnu og jólaóróa Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra en í ár er það Stúfur sem prýðir hann.
Stúfur er sjöundi óróinn í jólasveinaseríu Styrktarfélagsins og rennur allur ágóði af sölu hans til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Í óróanum fer saman íslenskur menningararfur, ritsnilld og hönnun - ásamt mikilsverðu málefni. Bragi Valdimar Skúlason og Þórunn Árnadóttir leggja félaginu lið með túlkun sinni á Stúfi – Bragi Valdimar yrkir málið og Þórunn í stálið.