Borgarstjóri stóð vaktina með Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins

Jón Gnarr, borgarstjóri, tók eina vakt með Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins sl. föstudag. Borgarstjóri vildi kynna sér starfsstöðvar slökkviliðsins í Skógarhlíð, á Tunguhálsi og í Hafnarfirði. Hann var mættur á vaktina í Skógarhlíð klukkan 19.00 um kvöldið og lauk vaktinni klukkan 5.00 morguninn eftir.  Jón fékk skoðunarferð um allar stöðvarnar og var farið ýtarlega yfir tækjakost og búnað. Til allrar hamingju voru engin brunaútköll á meðan heimsókn borgarstjóra stóð en honum gafst tækifæri til að prófa ýmsan búnað slökkviliðsins, fór meðal annars upp í körfubíl, sprautaði úr brunaslöngu og fleira. Borgarstjóri fór einnig á sjúkrabíl um höfuðborgarsvæðið og á meðan á því stóð fór hann í nokkur neyðarútköll og flutti fólk á bráðamóttöku. Borgarstjóri sagði það hafa verið afar áhugavert að fá að kynnast vinnu og starfsaðstæðum bæði slökkviliðsmanna og sjúkraflutningafólks. „Þetta var gríðarlega fræðandi og í raun nauðsynleg heimsókn því mér gafst ekki aðeins færi á að kynnast því mikilvæga starfi sem fer fram hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins heldur einnig því öfluga starfsfólki sem þar er að störfum.“