Borgarstjóri opnar jólaskóginn

Jón Gnarr, borgarstjóri, opnaði Jólaskóginn formlega á laugardag með því að höggva tré í skóginum. Borgarstjóri valdi sér stæðilegt furutré og felldi það sjálfur enda vann hann á árum áður sem skógarhöggsmaður. Nokkuð kalt var í Heiðmörk þennan dag en aðstæður til skógarhöggs allar hinar ákjósanlegustu. Að lokinni fellingu fékk borgarstjóri sér heitt kakó og piparkökur og heilsaði upp á jólasveinana sem mættir voru á svæðið. Hér má sjá frétt um jólastemninguna í Heiðmörk og í borginni um helgina í fréttatíma Stöðvar tvö.

Hjá mörgum fjölskyldum er það orðið að hefð fyrir jólin að koma í Heiðmörk á aðventunni og höggva sitt eigið jólatré. Það verður sannkölluð jólastemning í skóginum,  jólasveinarnir verða á staðnum og það verður logandi varðeldur. Gestum er boðið uppá heitt kakó og piparkökur og jólalögin sungin. Fjölmargir komu til að ná sér í jólatré yfir helgina.

Í ár verður opið í Grýludal í Heiðmörk helgarnar 10.-11. desember og 17.-18. desember klukkan 11 - 16. Sagir og klippur verða til útláns fyrir skógarhöggið. Íslensk jólatré eru vistvæn. Þau eru ræktuð án eiturefna og eru ekki flutt á milli landa. Í staðinn fyrir hvert tré sem höggvið er gróðursetur Skógræktarfélag Reykjavíkur að minnsta kosti fimmtíu tré.

Leiðin er vel merkt, bæði frá innkomuleiðinni við Rauðhóla og Vífilsstaðahlíð. Einnig er hægt að sjá leiðbeiningar og kort á heimasíðunni www.heidmork.is.