Borgarstjóri opnar Jólabæinn á Ingólfstorgi

Jón Gnarr, borgarstjóri, opnaið jólabæinn með pompi og prakt á Ingólfstorgi í dag. Í jólabænum verður boðið upp á skemmtilega dagskrá sem er til þess fallin að allir sem vettlingi geta valdið skundi í miðborgina og njóti þar ljúfra tóna, skemmtiatriða, veitinga auk þess fjölbreytta úrvals hönnunar og ýmissa jólavara sem Jólabærinn býður upp á.

Í Jólabænum verður boðið upp á íslenska gæðahönnun, ýmiskonar gjafavöru og margháttaða matvöru, bæði þjóðlega og alþjóðlega.

Jólabærinn verður opinn alla daga fram að aðfangadegi jóla milli kl. 12.00 til 18.00 og á Þorláksmessu til kl. 23.00.

Jólaborgin Reykjavík heldur áfram sínu flugi í desember en borgin hefur verið ríkulega skreytt þetta árið auk þess jólavættirnar góðu, tíu talsins, lífga upp á borgina. Hægt er að fara í fjölskylduvænan ratleik í miðborginni og fræðast meira um jólavættirnar en ratleikinn má nálgast Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti og í fjölmörgum verslunum í miðborginni. Þeir sem taka þátt og eiga þannig kost  á að vinna glæsilega vinninga. Sömuleiðis er að finna viðburðatengda jólapakka út um alla borg en upplýsingar um viðburði í borginni má finna á jólaborgarvefnum www.visitreykjavik.is/jolaborgin.