Borgarstjóri heimsótti Árbæjarskóla á forvarnardegi

Nemendur í 9. bekk Árbæjarskóla spurðu borgarstjóra margs þegar hann heimsótti þá í morgun í tilefni af forvarnardegi forsetans. Hann sagði þeim m.a. frá því þegar hann hékk sem unglingur á Hlemmi í stað þess að fara í skólann og hvernig hann komst aftur á rétt spor. Skemmtilegar umræður urðu um margt annað en forvarnir, s.s. um unglingavinnu og leiðir til að ná lifandi ísbirni í Húsdýragarðinn. Þá bað einn nemandi borgarstjóra um knús sem var auðsótt mál. 

Borgarstjóri heimsótti einnig á mánudaginn nemendur í Hlíðaskóla ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni forseta, en forvarnardagur er nú haldinn í sjöunda sinn. Um 135 grunnskólar og allir framhaldsskólar á landinu taka þátt í honum. Tilgangur þessa dags er að efla viðnám unglinga gegn áfengi og fíkniefnum. Þeir sem standa að deginum eru auk forseta Íslands; Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Skátahreyfingin, Reykjavíkurborg, Samband sveitarfélaga, Félag framhaldsskóla og Rannsóknir og greining en Actavis er bakhjarl verkefnisins.



Heimasíða forvarnardagsins.