Borgarstjóri felldi Oslóartréð
Jón Gnarr borgarstjóri felldi í morgun jólatréð, sem verður gjöf Oslóarbúa til Reykvíkinga í ár. Athöfnin fór fram í Solemskógi fyrir utan borgina og tók Jón sjálfur þátt í að fella tréð, enda vann hann á árum áður sem skógarhöggsmaður þegar hann var búsettur í Svíþjóð.
Fjölmenni var viðstatt athöfnina þeirra á meðal var hópur barna auk íslendinga sem búsettir eru í Osló og flutti íslenski sönghópurinn 3 raddir og beatur nokkur jólalög. Snjór var yfir öllu og ekki laust við að viðstaddir kæmust í smá jólastemningu.
Borgarstjóri sagði komu sína til athafnarinnar táknræna, og vildi hann með því móti færa Oslóarbúum þakklæti Reykvíkinga fyrir gjöfina. Tendrun jólatrésins væri ómissandi liður í jólahaldi borgarbúa og ávallt efnt til hátíðahalda í miðborg Reykjavíkur þegar tendrað væri á ljósunum á Austurvelli.
Tréð verður nú flutt með skipi til Reykjavíkur og ljósin tendruð á því á fyrsta sunnudegi í Aðventu þann 2. desember nk.