Borgarstjóri fékk Jón Gnarr brúðu að gjöf
Marta M. Niebieszczanska, fréttamaður pólska fréttavefsins Informacje, tók viðtal við Jón Gnarr borgarstjóra í dag. Hún ræddi við borgarstjóra um starfið, fjölmenningu, samráðsvefinn Betri Reykjavík og fleira. Þá ræddu þau hvernig borgarstjóra gangi að flétta saman starf sitt sem æðsti embættismaður borgarinnar og vera listamaður. Viðtalið verður svo birt á heimasíðu Informacje.
Í lok viðtalsins afhenti Marta borgarstjóra brúðu, eftirlíkingu af honum sjálfum í bleiku jakkafötunum sem hann klæddist í tilefni af baráttudegi gegn brjóstakrabbameini. Brúðuna gerði pólskur listamaður, Tadeusz Wn?k, en hann býr í borginni ?ywiec og hefur honum tekist vel til því hann gerði hana alfarið eftir ljósmynd. Tadeusz er Íslandsvinur ferðaðist um landið í haust ásamt 2 vinum sínum og lesa má um ferðina á heimasíðu þeirra: http://miniiceland.com
Brúðan kom borgarstjóra skemmtilega á óvart og hann sagði samstundis „Þetta er mini me“ ! Meðfylgjandi myndir segja meir en mörg orð.