Bókun borgarráðs um Orkuveituskýrsluna

Úttektarnefnd um Orkuveitu Reykjavíkur kynnti nýútkomna skýrslu sína á fundi borgarráðs, fimmtudaginn 11. október sl.

Borgarráð þakkaði nefndarmönnum, Margréti Pétursdóttur, Ómari H. Kristmundssyni og Ásu Ólafsdóttur  fyrir vel unnin störf  og ítarlega skýrslu um orsakir fjárhagsstöðu Orkuveitu Reykjavíkur. Lögð var fram svohljóðandi bókun.

„Nýsamþykkt eigendastefna sem borgarstjórn og aðrir eigendur sameinuðust um tekur á mörgum þáttum sem gagnrýndir eru í skýrslunni en borgarráð beinir því að auki til eigendanefndar að bera saman niðurstöður skýrslunnar og eigendastefnuna til að komast að því hvort eigendastefnan nái yfir þá þætti sem gagnrýndir eru í skýrslunni. Jafnframt hugi eigendanefndin að atriðum sem lúta að lagaumgjörð Orkuveitunnar og láti vinna tillögur að skýrari umgjörð og ákvæðum í samræmi við ábendingar í skýrslunni. Jafnframt óskar borgarráð eftir því að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggi mat á það hvort þær umbætur sem unnið hefur verið að nái til allra þeirra þátta sem gagnrýni úttektarinnar beinist að.“

Skýrsla úttektarnefndarinnar verður rædd á fundi borgarstjórnar á morgun, þriðjudaginn 16. október.