Betri Reykjavík fær nýsköpunarverðlaun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu

 

Reykjavíkurborg  fékk í morgun Nýsköpunarverðlaun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu fyrir Betri Reykjavík. Jón Gnarr borgarstjóri tók við viðurkenningu vegna þessa frá forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, við hátíðlega athöfn á Grand Hóteli í Reykjavík. Í umsögn dómnefndar segir:

„Betri Reykjavík er samráðsvefur og vettvangur fyrir þróun þátttökulýðræðis í Reykjavík.Vefurinn er opinn allan  ársins hring og gefst þar íbúum borgarinnar tækifæri til að setja fram hugmyndir sínar og skoðanir á öllu því sem varðar getur  stefnu, áherslur, þjónustu og rekstur Reykjavíkurborgar.  Hugmyndir sem settar eru fram og ræddar meðal notenda vefsins eru sendar fagráðum borgarinnar sem formleg stjórnsýsluerindi og fara þar í farveg umræðu og afgreiðslu.  Vefurinn er rekinn af einkaaðilum‚ Íbúum samráðslýðræði ses, í samstarfi og fyrir Reykjavíkurborg skv. þjónustu og rekstrarsamningi. Um er að ræða einstakt nýmæli er hefur það að markmiði að  virkja lýðræðislega þátttöku almennings í að hafa áhrif á ákvarðanir er varða málefni borgarinnar og þeirra sjálfra með aðgangi að stjórnsýslunni með hætti sem á sér fáar fyrirmyndir.  Það hefur mikið almannagildi, er mikilvægt fyrir sveitarfélagið og hægt að yfirfæra hugmyndina á fleiri svið þjóðlífsins.“

Reykjavíkurborg hvetur alla íbúa í Reykjavík til að nýta sér vettvanginn Betri Reykjavík þar sem hægt er að taka þátt í samræðum um málefni borgarinnar, kynna sér þau mál sem eru efst á baugi, styðja hugmyndir eða hafna þeim og skrifa röksemdir með eða á móti fram komnum hugmyndum.

Nýsköpunarverðlaun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu