Barnamenningarhátíð í Reykjavík 23. – 28. apríl 2013

Barnamenningarhátíð í Reykjavík verður haldin í þriðja sinn á vordögum. Hátíðin er kærkominn vettvangur fyrir menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Hún er byggð upp á mörgum smáum viðburðum og rúmar allar listgreinar og allt sem að börnum snýr. Hátíðin hefur það ekki síður að markmiði að efla umræðu um barnamenningu í samfélaginu, fjölmiðlum og á torgum.

Allir sem láta sig barnamenningu varða eru boðnir á sameiginlegum undirbúningsfundi miðvikudaginn 24. október 2012, kl. 15.00 - 16.30, á 7. hæð í Borgartúni 12 - 14. Á undirbúningsfundinum verður hátíðin, áherslur hennar og verklag kynnt fyrir þátttakendum. Sagðar verða reynslusögur frá Barnamenningarhátíð 2012 og nýjar hugmyndir kveiktar sem snerta hin ýmsu birtingarform lista og menningar. Áhersla verður lögð á strauma og stefnur í barna og unglingamenningu og samstarf skólastofnanna hverskonar við listamenn, menningarstofnanir og félagasamtök.

Eins og áður mun Höfuðborgarstofa ásamt stjórn Barnamenningarhátíðar vinna að samræmingu viðburða, kynningarstarfi og fleiru en viðburðirnir sem mynda dagskrá hátíðarinnar eru skapaðir og framkvæmdir af hugmyndaríkum einstaklingum, félagasamtökum, menningarstofnunum, leik-, grunn- og listaskólum út um alla borg.

Höfuðborgarstofa hvetur alla sem áhuga hafa á því að efla barnamenningu, hverju nafni sem hún nefnist, að leggja lóð á vogarskálarnar með því að setja upp viðburð í vikunni sem Barnamenningarhátíð stendur yfir, brydda upp á starfi tengdu barnamenningu eða kynna það sem þeir hafa fram til barnamenningar að leggja.

Við hlökkum til að sjá þig á fundinum og skorum á þig að leyfa hátíðinni að leika sér í undirvitundinni fram að því, óvæntum hugmyndum að kvikna og spennandi tengslum að myndast.

Tengiliðir:

Karen M. Jónsdóttir, verkefnastjóri karen.maria.jonsdottir@reykjavik.is.

Guðmundur B. Halldórsson, verkefnastjóri gudmundur.birgir.halldorsson@reykjavik.is.

Arnfríður S. Valdimarsdóttir, verkefnastjóri arnfridur.solrun.valdimarsdottir@reykjavik.is.