Bæjartúnið - nýr áningarstaður í Vogahverfinu
Nýr áningastaður fyrir gangandi og hjólandi verður tekinn í notkun í dag, þriðjudaginn 24. júlí kl. 17:00. Hönnunarteymið MÓT hefur unnið að því að búa til hinn nýja áningarstað sem er á bæjartúninu í Vogahverfinu, en það liggur milli Gnoðarvogs og Suðurlandsbrautar. Þar er mjög vinsæl göngu- og hjólaleið borgarinnar, en þó virðast fáir stoppa til að njóta gróðursins og skjólsins sem bæjartúnið hefur upp á að bjóða.
Áningarstaðurinn er myndaður úr bekkjum sem raðast saman og bjóða þannig upp á margs konar notkunarmöguleika. Markmiðið er að vinna með hefðbundna hugmynd en útfæra hana á forvitnilegan hátt og fá með því vegfarendur til þess að staldra við og virða fyrir sér fallegt umhverfi staðarins, teygja úr sér og spjalla saman. Verkefni hönnunteymisins Móts var valið í íbúakosningunni Betri hverfi.
Verkefnið á bæjartúninu er hluti af biðsvæðaverkefni Reykjavíkurborgar, Torg í biðstöðu, sem snýst um að gæða almenningssvæði lífi með tímabundnum lausnum.
Nánari upplýsingar:
- Almenn upplýsingasíða um biðvæði – Torg í biðstöðu >>> www.reykjavik.is/bidsvaedi
- Frétt 23. júlí: Sköpunarkraftur borinn á torg um alla borg
- Facebook síða MÓTs >>> http://www.facebook.com/MOT.TORG