Átak um ábyrga tölvunotkun

Þrír skólar í sunnanverðum Grafarvogi hafa á undanförnum vikum staðið fyrir átaksverkefni um ábyrga tölvunotkun barna og unglinga. Nemendur og foreldrar fengu fræðslu um mikilvægi þess að tileinka sér ábyrg vinnubrögð og samskipti á netinu og var leitað liðsinnis hjá SAFT-verkefninu, Rannsóknarlögreglu ríkisins, sálfræðingi og foreldrafélögum skólanna. 

Námsefni frá SAFT fór inn á heimili allra nemenda og í Foldaskóla var því efni m.a. fylgt eftir með spunaleik undir leiðsögn Rannveigar Þorkelsdóttur leiklistarkennara. Leikþátturinn sem þannig varð til var síðan sýndur öllum nemedum. Þá gerðu krakkarnir í Foldaskóla skemmtileg myndverk sem tengdust efninu svo og myndband sem sent hefur verið í alþjóðlega samkeppni um ábyrga tölvunotkun unglinga. Þór Ingvarsson rannsóknarlögreglumaður kom í heimsókn og fræddi nemendur og foreldra um ýmis kærumál sem komið hafa upp vegna óábyrgrar tölvunotkunar ungmenna og Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur fjallaði um úrræði við tölvufíkn.



Skólasamfélagið hefur ekki farið varhluta af af því hvernig óhófleg og eftirlitslaus tölvunotkun barna og unglinga getur haft á líðan þeirra og starf og því þótti þetta viðfangsefni afar mikilvægt. Þetta átaksverkefni var styrkt af Forvarnarsjóði Reykjavíkurborgar.