Árlegur haustfundur Lögreglunnar í Hæðargarði
Árlegur haustfundur Lögreglunnar á Höfðuðborgarsvæðinu og íbúa í Laugardal, Háaleiti og Bústaðahverfi verður haldinn í félagsmiðstöðinni Hæðargarði miðvikudaginn 21. nóvember. Á fundinum mun Stefán Eiríksson lögreglustjóri, ásamt fríðu föruneyti, kynna stöðu helstu löggæslumálefna borgarhlutans.
Fundurinn er árviss viðburður í hverfinu og jafnan vel sóttur af starfsfmönnum skóla, félagasamtökum, foreldrafélögum, íbúasamtökum og öðrum áhugasömum hverfisbúum.
Fundurinn hefst kl 16.00 og stendur yfir í um klukkustund.
Hverfisbúar eru hvattir til að mæta, fræðast um stöðu löggæslumála í hverfunum og beina fyrispurnum til starsmanna Lögreglunnar.