Ánægja með þjónustu dagforeldra sem vilja meira samstarf

Könnun meðal dagforeldra í borginni sýnir að mikill meirihluti þeirra sækir stuðning til annarra dagforeldra og vill fá fleiri tækifæri til samstarfs. Einnig hefur þorri dagforeldra áhuga á að sækja fræðslu eða ráðgjöf til leikskóla í sínu hverfi og fá tækifæri til að nýta leikskólalóð fyrir börnin.

Í ljós kom jafnframt að dagforeldrar eru upp til hópa ánægðir með eftirlits – og ráðgjafaheimsóknir og telja að þá gefist gott tækifæri til að ræða fagleg málefni og fá endurgjöf á starfið. Margir óskuðu eftir fleiri slíkum heimsóknum eða aukinni samvinnu við daggæsluráðgjafa.



Þetta er fjórða könnunin sem gerð er meðal dagforeldra frá árinu 2006. Mun fleiri dagforeldrar hafa nú ýmsar upplýsingar um starfsemina sýnilega fyrir foreldra, s.s. um dagskipulag, gjaldskrá, matseðil auk ýmissa áætlana sem snerta aðbúnað og öryggi barna.  

Foreldrar hrósa dagforeldrum en vilja leikskóla fyrr

Allir dagforeldrar sem tóku þátt í könnuninni höfðu fengið hrós frá foreldrum vegna starfsins, þar af 86% oft. Það er í samræmi við niðurstöður viðhorfskönnunar meðal reykvískra foreldra með barn hjá dagforeldrum sem gerð var á vordögum. Hún sýndi mikla ánægju með þjónustu dagforeldra. Þar kom einnig fram að rúmlega helmingur foreldra hefði heldur kosið leikskólapláss fyrir barn sitt hefðu þeir átt þess kost. Algengasta ástæða þess var að vistun í leikskóla er ódýrari en einnig var  aukið faglegt starf nefnt. Margir foreldrar telja dagforeldraþjónustu góðan kost fyrir börn á ákveðnu aldursbili þó flestir þeirra kjósi leikskóladvöl þegar 18 mánaða aldri er náð. Rúmlega þriðjungur foreldra var reiðubúinn til að greiða svipað gjald fyrir leikskólapláss og fyrir dagforeldraþjónustu ef barn þeirra kæmist fyrr inn í leikskóla og u.þ.b. jafn margir voru tilbúnir að skoða þá hugmynd betur.

Yfir helmingur foreldranna hóf leit að dagforeldri þegar barn þeirra var 1 - 6 mánaða og langflest börnin voru 7 - 12 mánaða þegar þau fóru í vistun. Foreldrar voru sammála um að of lítið val hefði verið um dagforeldra og yfir 60% gerðu engan samanburð áður en vistun var tekin hjá því dagforeldri sem barnið þeirra dvaldi hjá. Þriðjungur foreldra nýtti þjónustu dagforeldris í öðru hverfi en þeir bjuggu eða störfuðu í og tæplega helmingur þeirra vildi fremur hafa dagforeldrið í sínu heimahverfi.

Langflestir foreldranna voru jákvæðir fyrir því að tveir dagforeldrar störfuðu saman og töldu það helst auka öryggi barna jafnt sem dagforeldra.

867 börn dvöldu hjá dagforeldrum í maí þegar könnunin var gerð og svöruðu foreldrar 654 barna könnuninni eða 75%.

Sjá könnun meðal dagforeldra.

Sjá könnun meðal foreldra sem eiga barn hjá dagforeldri.