Ánægðir gestir Viðeyjar
Nánast allir gestir Viðeyjar í sumar segjast myndu mæla með Viðeyjarferð við vini og ættingja. Þá er yfir 93 prósent gesta mjög ánægt með þjónustu í eyjunni. Þetta kemur fram í könnunum sem lagðar voru fyrir úrtak eyja-gesta í júní og júlí. Langflestir eða um 60 prósent gestanna segjast þangað komnir til að njóta útivistar. Íslendingar eru fjölmennastir eða tæplega 40 af hundraði , Bandaríkjamenn virðast áhugasamir um eyjuna því þeir eru um 13 prósent eyja-gesta, Norðurlandabúar tæplega 10 prósent og fólk frá öðrum Evrópulöndum eru um 32 prósent þeirra sem heimsækja Viðey. Á fyrstu sjö mánuðum ársins sóttu vel yfir 14 þúsund gestir eyjuna heim og hefur fjöldinn aukist ár frá ári undanfarin ár.
Mikið hefur verið lagt upp úr að auka þjónustu við gesti t.d. með greinagóðum vegvísum með fróðleik um sögu, listaverk, gróður og fuglalíf eyjunnar. Tekið er á móti skólabörnum á vorin, flestar helgar sumarsins eru eitthvað skemmtilegt að gerast í eyjunni og veitingahúsið í Viðeyjarstofu hefur verið opið alla daga vikunnar. Skemmti- og fróðleiksgöngur á þriðjudagskvöldum hafa verið afar vinsælar og fullt hefur verið út úr dyrum á tónleika sem haldnir hafa verið í sumar.
Stefnt er að því að halda tónleika einn fimmtudag í mánuði fram eftir vetri. Viðeyjarferjan siglir alla daga vikunnar út í eyju allan septembermánuð, eftir það mun hún sigla um helgar.
Töðugjöld verða haldin laugardaginn 8.september. Þann dag verður uppskeru sumarsins fagnað að hætti Viðeyinga með uppskeruþakkargjörð, tilsögn í prúðmannlegri framkomu, fróðleik um kartöflur, haustréttir verða í pottum, ljósmyndasýning og gott kaffimeðlæti.
Í haust verður svo metnaðarfull dagskrá í Viðeyjarstofu og Friðarsúlan hennar Yoko Ono mun gleðja og fegra umhverfi sitt.
Allir viðburðir hausts og vetrar verða kynntir rækilega á www.videy.com.