Allir synda vel

Andalífið blómstrar á Tjörninni þessa dagana og virðist sem viðkoma sé nú meiri en undanfarin sumur. Stokköndin syndir stolt um með unga sína og á fullt í fangi með að passa upp á ungahópinn sinn sem getur verið allt að átta ungar. Þær endur sem eru með minnstu ungana halda sig við tjarnarbakkann og skjótast með þá í skjól undir Maríustakk eða annan gróður þegar helsti vargurinn í tjarnarsamfélaginu, sílamáfurinn, nálgast.

Andarungarnir éta helst skordýralirfur og önnur vatnasmádýr sem innihalda mikið prótín og brauð kemur ekki í staðinn fyrir þá fæðu. Munum því að gefa ekki öndunum brauð á þessum árstíma og laða þar með að vargfuglinn.

Verið er að styrkja friðlandið í Vatnsmýrinni og hefur borgin, í samstarfi við Háskóla Íslands og Norræna húsið, unnið að því að friðlandið nýtist öndum og öðrum fuglum sem varpland.