ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Áfram malbikað á Bústaðavegi
Áfram er unnið við malbiksviðgerðir á Bústaðavegi með tilheyrandi lokunum og þrengingum. Fimmtudaginn 25. október verður unnið frá klukkan 9.00 til 14.00 á akrein með akstursstefnu til austurs, í átt frá miðborginni, frá Ásgarði að Tunguvegi. Teknir verða fyrir stuttir kaflar í einu og er gert ráð fyrir tveimur lokunum yfir daginn annars vegar með hjáleið um Tunguveg, Sogaveg og Réttarholtsveg og hins vegar með hjáleið um Ásgarð.
Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát við framkvæmdasvæði og virða hraðatakmarkanir.