Aðskotahlutur í First Price niðursoðnum hökkuðum tómötum
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Efni: Aðskotahlutur (málmur) í First Price niðursoðnum hökkuðum tómötum.
Kaupás hf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði eftirfarandi vöru þar sem aðskotahlutur (málmur) fannst í einni dós. Aðskotahluturinn fannst í Danmörku.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: First Price.
Vöruheiti: Hakkede Tomater.
Umbúðir: Niðursuðudósir.
Nettóþyngd: 400 g.
Lotunúmer: DE2 M 222.
Strikanúmer: 5701410046538.
Dreifing: Verslanir Nóatúns, Krónunnar og Kjarvals um land allt.
Viðskiptavinir sem keypt hafa First Price niðursoðna hakkaða tómata með ofangreindu lotunúmeri eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila vörunni í einhverri af þeim verslunum þar sem henni er dreift.