Aðalfundur Íbúasamtakanna Betra Breiðholt

Aðalfundur Íbúasamtakanna Betra Breiðholt verður haldinn í D-sal í Gerðubergi miðvikudaginn 21. nóv. kl. 19.30 og er gengið inn frá neðri bílastæðum.

 Dagskrá:

1. Skýrsla stjórnar

2. Reikningar lagðir fram

3. Kosning stjórnar

4. Kosning skoðunarmanna

5. Önnur mál



Á fundinum verður fræðsla um það sem verið er að gera í hverfinu. Framkvæmdir, umferðaröryggi og hugað að því hvað íbúinn vill sjá betur fara í hverfinu. Hverju villt þú breyta? Við þurfum að fækka trukkastæðum. Bæta þarf umferðarflæði um stofnbrautir í kringum okkur þar sem umferð eykst og sé ekki bætt úr flæðinu þá eykst mengun og slysahætta. 



Gestur verður Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi sem ræðir um raunverulegt íbúalýðræði. Þáttöku íbúanna við gerð fjárhagsáætlana. Kröfuna um að almenna reglan verði sú að allar upplýsingar sem eru til staðar hjá borginni verði gerðar aðgengilegar og það þurfi að rökstyðja það sérstaklega ef svo er ekki. Þetta á sérstaklega við um upplýsingar og gögn sem varða ákvarðanir. Einnig mun hann tala um hverfalýðræði. Að íbúar kjósi í hverfisráð og þau hafi með öðrum samtökum íbúa, mikið að gera með stjórn nærumhverfis.



Fundarstjóri verður Lárus Rögnvaldur Haraldsson formaður hverfisráðs Breiðholts.

Netfang íbúasamtakanna er: betrabreidholt@gmail.com.