95% foreldra ánægðir með sumarsmiðjur

Könnun sem gerð var meðal foreldra barna sem tóku þátt í sumarsmiðjum frístundamiðstöðvanna á liðnu sumri sýnir að 95% þeirra voru ánægðir með framkvæmd þeirra og þau viðfangsefni sem börnunum var boðið upp á. Sumarsmiðjurnar voru fyrir 10 - 12 ára börn.

Ánægja foreldra mældist á bilinu 94 - 100% eftir hverfum og var mikil ánægja með flesta þætti sem spurt var um.

96% foreldra sögðu að barni þeirra hefði liðið vel í smiðjunum og sama hlutfall foreldra sögðu að barnið hefði hlakkað til að fara. Helst þótti foreldrum að bæta mætti upplýsingar um viðfangsefni sumarsmiðjanna.

Mikill meirihluti foreldra, eða um 87%, þótti hentugast að bjóða upp á sumarsmiðju í frístundamiðstöðvanna frá 11. júní og fram í miðjan júlí.

Tekið verður mið af þessum ánægjulegu niðurstöðum við skipulag á sumarsmiðjum næsta sumar.

Sjá myndband um sumarsmiðjurnar sem unnið var af Gufunesbæ.