70 ára Reykvíkingar heiðraðir

Mannlíf Menning og listir

""

Liðlega 400 manns sóttu móttöku til heiðurs 70 ára Reykvíkingum í Ráðhúsi Reykjavíkur i dag. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, hélt stutt ávarp í upphafi móttökunnar þar sem hann rifjaði upp helstu viðburði á fæðingarári gestanna, árið 1942.



Meðal þess sem fram kom í ræðu Dags var að árið 1942 var afar umbrotamikið, stríðsátök voru í Evrópu og breskt herlið hafði numið land á Íslandi. Árið 1942 var Reykjavík skuldlaus bær og átti eignir sem metnar voru á 27 miljónir króna. Íbúar voru tæplega 40 þúsund, á atvinnuleysisskrá voru 24 einstaklingar og í nýútkominni símaskrá voru 5.300 símanúmer. Að lokum fór Dagur með ljóðið Austurstræti eftir Tómas Guðmundsson. Þá söng Sigríður Thorlacius nokkur lög og boðið var upp á léttar veitingar. Gestirnir kunnu vel að meta að koma í Ráðhúsið til að hitta vini og kunningja og spjalla saman. Reykjavíkurborg óskar afmælisbörnunum til hamingju með sjötugsafmælið.