40 málverk eftir 40 listamenn í Ráðhúsinu
Félag frístundamálara heldur sína árlegu haustsýningu í Tjarnarsal Ráðhússins frá 23. - 30.október. Félagið hefur tekið saman 40 myndir eftir 40 listamenn sem verða til sýnis og sölu alla vikuna. Formleg opnun sýningarinnar er í dag þriðjudaginn 23.okt klukkan 17. Öllum er velkomið að koma við og njóta léttra veitinga.
Fulltrúar listamanna verða svo á svæðinu alla dagana, tilbúnir í spjall eða leiðsögn.
Sunnudaginn 29. október klukkan 14 mun Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, halda fyrirlestur um mikilvægi listarinnar. Framsagan verður nánar auglýst síðar.