ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
14 þúsund nemendur í grunnskólum Reykjavíkurborgar
Skólastarf 2012 - 2013 er að hefjast í 34 almennum grunnskólum í Reykjavík, 2 sérskólum og 5 einkaskólum. Þá munu um 14 þúsund nemendur á grunnskólaaldri hefja nám, þar af eru um 1400 börn sem hefja nám í 1. bekk. Undirbúningsstarf fyrir skólabyrjun er nú í fullum gangi og verður skólasetning miðvikudaginn 22. ágúst í öllum almennum grunnskólum. Á heimasíðum skólanna má finna upplýsingar um skólabyrjun, mætingar árganga og innkaupalista. Upplýsingar um tímasetningar mætinga nemenda (PDF 157KB).