190 milljónir í umferðaröryggisaðgerðir 2020

Samgöngur Umhverfi

""

Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við umferðaröryggismál 2020. Verkefnin eru að hluta skv. áætlun um að flýta fjárfestingaverkefnum Reykjavíkurborgar með það að markmiði að veita viðspyrnu við atvinnuleysi af völdum COVID-19.

Þá verður áfram unnið að ýmsum öðrum aðgerðum í umferðaröryggismálum í samræmi við ábendingar og forgangsröðun. Kostnaðaráætlun vegna verkefna ársins 2020 er 190 milljónir króna.

Um er að ræða aðgerðir á eftirfarandi stöðum í borginni:

Snjallgangbrautir

Tækni sem gerir gangandi vegfarendur sýnilegri þegar þeir fara yfir gangbrautir. Um er að ræða tæknibúnað sem skynjar þegar gangandi vegfarendur nálgast gangbraut og kveikir þá LED götulýsingu, sem sett er upp þannig að einungis gangbrautin og sá sem fer yfir verða lýstir upp. Einnig kviknar lýsing í gangbrautarmerkinu og viðvörunarljós fyrir akandi umferð.

•Neshagi v. Furumel

•Rofabær v. Árbæjarskóla

•Seljaskógar v. Seljabraut

•Fjallkonuvegur v. Logafold

Gangbrautir og bættar gönguþveranir

•Sólvallagata v. Framnesveg, gangbraut og upphækkun

•Framnesvegur v. Brekkustíg, gangbrautarlýsing, þrenging og upphækkun

•Ægisgata v. Ránargötu, gangbraut og upphækkun

•Hverfisgata v. Frakkastíg og Barónsstíg, gangbrautir

•Háteigsvegur v. Hjálmholt, gangbrautarlýsing og biðstöð strætó

•Háteigsvegur v. Stakkahlíð, gangbrautarlýsing

•Hrísateigur v. Otrateig, bætt gönguþverun og upphækkun •Engjateigur, bættar gönguþveranir og     upphækkanir

•Reykjavegur v. Hrísateig, gangbraut

•Laugarásvegur, gangbrautarlýsing og upphækkanir

•Reykjahlíð v. Eskihlíð, gangbraut og upphækkun

•Sogavegur, gangbrautarlýsing

•Smárarimi, gangbraut og upphækkun

•Jaðarsel, bætt gönguþverun og biðstöð strætó

•Lambhagavegur, bætt gönguþverun

Hraðalækkun:

•Engjateigur

•Reykjavegur, milli Sigtúns og Kirkjuteigs

•Sundlaugavegur, milli Laugalækjar og Laugarásvegar

•Laugarásvegur

•Lokinhamrar

•Haukdælabraut, Reynisvatnsás

Annað

•Grandavegur, bætt sýn við innkeyrslu Ægissíða

•Innkeyrsla að bílastæði Stakkahlíð

•Eyra við innkeyrslu Laugar

•Loka innkeyrslu að bílastæði Sogavegur

•Bætt sýn Austurberg breikka gangstétt