Níu umsækjendur sóttu um starf sviðsstjóra mannauðs- og starfsumhverfis og tíu umsækjendur sóttu um starf sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringar. Mannauðs- og starfsumhverfissvið og Fjármála- og áhættustýringarsvið eru ný kjarnasvið sem munu starfa innan nýs stjórnskipulags Reykjavíkurborgar sem tekur gildi 1. júní nk.
Stöðurnar voru auglýstar þann 9. mars sl. og rann umsóknarfrestur út þann 25. mars síðastliðinn.
Umsækjendur um starf sviðsstjóra mannauðs- og starfsumhverfis
Elísabet Einarsdóttir, fjármálastjóri
Hildur Gísladóttir, forstöðumaður
Inga Guðrún Birgisdóttir, mannauðsstjóri
Jóhanna Rúnarsdóttir, nemi
Kristín Dögg Höskuldsdóttir, mannauðsstjóri
Kristín Helgadóttir, mannauðsstjóri
Lóa Birna Birgisdóttir, deildarstjóri
Sigríður Stefánsdóttir, mannauðsstjóri
Sverrir Hjálmarsson, mannauðsstjóri
Umsækjendur um starf sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringar
Arnar Ingi Einarsson, sjóðsstjóri
Guðmundur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur
Halldóra Káradóttir, deildarstjóri
Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, sjálfstætt starfandi
Hrafn Árnason, framkvæmdastjóri
Hrannar Örn Hrannarsson, MBA
Lúðvík Vilhelmsson, sérfræðingur
Sigríður Katrín Kristbjörnsdóttir, fjármálastjóri
Unnur Míla Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri
Nú fer í gang ráðningarferli sem Intellecta heldur utan um í samvinnu við hæfnisnefndir sem borgarráð skipaði. Hæfnisnefndirnar eru skipaðar í samræmi við b. lið 3. gr. reglna um ráðningu borgarráðs í æðstu stjórnendastöður hjá Reykjavíkurborgar, sem eru frá 24. janúar 2019.
Hæfnisnefnd mannauðs og starfsumhverfis:
Hæfnisnefndina skipa Ásta Bjarnadóttir, mannauðsstjóri Landspítalans, sem jafnframt er formaður, Ómar Einarsson, sviðsstjóri á íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkurborgar og Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi hjá Strategíu.
Hæfnisnefnd fjármála og áhættustýringar:
Hæfnisnefndina skipa Ágúst Þorbjörnsson, rekstrarráðgjafi, sem jafnframt er formaður, Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar og Helga Hlín Hákonardóttir, ráðgjafi hjá Strategíu.