1715 plássum úthlutað í fyrsta hluta leikskólaúthlutunar 2024

Skóli og frístund

Börn að leik

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar 1.715 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla. Einnig má áætla að sjálfstætt starfandi leikskólar bjóði um 350 börnum vistun frá og með hausti. Mörg þeirra barna sem fá boð í sjálfstætt starfandi leikskólana eru einnig á biðlista fyrir borgarrekna leikskóla.

Enn stendur yfir úthlutun í sjálfstætt starfandi leikskólum

Talsverðum fjölda barna sem fædd eru í febrúar 2023 og verða orðin 18 mánaða þann 1. september næstkomandi hefur verið boðið leikskólapláss. Þó er misjafnt er eftir hverfum hversu mörg börn á þessum aldri hafa fengið boð. Enn stendur yfir úthlutun hjá sjálfsstætt starfandi leikskólum en mörg börn eru skráð á tvo eða fleiri biðlista sem þýðir að heildarmynd fyrir haustið á eftir að skýrast.

Keðjuverkun í vistunarmálum

 Ákveðin keðjuverkun verður í vistunarmálum barna á leikskólaaldri þegar innritun hefst. Þegar pláss býðst í borgarreknum leikskóla losna gjarnan pláss á móti hjá sjálfsstætt starfandi skólum og hjá dagforeldrum en það kemur ekki í ljós fyrr en foreldrar draga umsóknir til baka. Mikilvægt er að hafa í huga að þar sem biðlistar eru ekki samtengdir eru börn áfram á biðlistum þangað til þau hefja vistun eða foreldrar draga umsókn til baka. Því eru foreldrar barna sem hafa fengið boð um pláss hvattir til að draga aðrar umsóknir til baka svo fleiri foreldrar fái fyrr svör og boð um vistun.

 Ný pláss munu bætast við í haust þegar Ævintýraborg við Barónstíg/Vörðuskóla opnar. Einingarnar eru komnar á lóðina og er unnið að því að standsetja bæði hús og lóð fyrir leikskólastarf. Stefnt er því að innritun hefjist í sumar en leikskólinn verður hluti af leikskólanum Miðborg. 

Börn að leik í leikskóla