17. júní í Reykjavík

Skrúðganga

Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn hátíðlegur í miðborg Reykjavíkur á morgun 17. júní. Dagskráin er fjölbreytt og í boði verða fjölskylduskemmtanir, tónleikar, götuleikhús, dansveisla, sirkus, leiktæki, matarvagnar og fornbílasýningar svo fátt eitt sé nefnt.

Morgundagskrá á Austurvelli

Hátíðarathöfn á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins hefst á Austurvelli kl. 11.10 en henni verður sjónvarpað og útvarpað á RÚV. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir flytur hátíðarræðu. Fjallkonan flytur ávarp en ávallt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til á hátíðarathöfninni. Að lokinni athöfn fer skrúðganga frá Austurvelli í kirkjugarðinn við Suðurgötu þar sem forseti borgarstjórnar, Magnea Gná Jóhannsdóttir, leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar forseta og Ingibjargar Einarsdóttur. Lúðrasveitin Svanur leikur við athöfnina. 

Skrúðgöngur

Skátar leiða skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju og Hagatorgi klukkan 13.00. Báðar skrúðgöngur ganga að hátíðarsvæðinu í Hljómskálagarði. Í skrúðgöngunni frá Hallgrímskirkju slæst Tröllvaxinn leynigestur í hópinn og Lúðrasveit Verkalýðsins leikur undir. Í skrúðgöngunni frá Hagatorgi í Hljómskálagarð mun Lúðrasveit Reykjavíkur leika undir. Öllum er velkomið að taka þátt. 

Þjóðhátíð í Reykjavík

Skemmtidagskráin á 17. júní verður í Hljómskálagarði, Klambratúni, Breiðholti og Grafarvogi.  

Hljómskálagarður 

Þegar skrúðgöngur koma í Hljómskálagarðinn hefst skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna. Skátar sjá um náttúruþrautabraut, leiktæki og hoppukastala. Sirkus Íslands sýnir allskyns sirkuskúnstir. Listhópar Hins hússins og Götuleikhússins troða upp.Ýmsar uppákomur verða á víð á dreif um garðinn Húllastelpan, Hringleikur og tröll verður á sveimi. 

Njótum saman á Klambratúni 

Á Klambratúni verður boðið upp létta og skemmtilega stemningu fyrir alla fjölskylduna og hefst dagskrá klukkan 13:00. Hoppukastalar, Matarvagnar, Dj Fusion Groove, Kramhúsið með breik og hip hop fyrir börn og unglinga, Dans Brynju Péturs og HEMA skylmingar.  

Dansveisla í Ráðhúsinu

Harmonikkuball frá 16.00-17.30 fyrir þá sem vilja alvöru ball.   

Hátíðardagskrá í Breiðholti, Grafarvogi og Árbæjarsafni

Hátíðardagskrá í Breiðholti fer fram á Leiknisvelli en þar koma fram Úlfur Úlfur, Bjarni töframaður, Jón Arnór og Baldur, auk þess sem hægt er að taka þátt í línudansi, fara í búbblubolta og margt fleira.  

Í Grafarvogi munu Skátafélagið Vogabúar og skákdeild Fjölnis standa að hverfahátíð í frístundagarðinum við Gufunesbæ frá kl.14:00 til 17:30. Skákmót, leiktæki og hoppukastalar, heitt verður á grillinu og Dóra og döðlurnar, Espólin, 5K Á KORTIÐ og Jón Jónsson skemmta fólki. 

Á Árbæjarsafni verður þjóðbúningurinn í öndvegi og eru gestir hvattir til að mæta í eigin þjóðbúningi. Vikivaki sýnir gamla þjóðdansa um eftirmiðdaginn.  Fjallkonunni verður skautað í Lækjargötu kl. 14 og má enginn missa af því. Litríku og góðu sleikjóarnir verða á sínum staði í Krambúðinni og heitt á könnunni í Dillonshúsi og heimabakað góðgæti.

Gestir eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í hátíðahöldunum.  

Kort af hátíðarsvæðinu

Dagskrá má nálgast 17juni.is