No translated content text
Ylströndin Nauthólsvík - Endurbætur á þjónustuhúsi
Framkvæmdin felur m.a. í sér að bæta aðstöðu og þjónustu við fólk með fjölbreytta færni. Gerður verður í þjónustuhúsinu nýr sérklefi með búnaði fyrir fólk með fötlun og plássi fyrir tvo einstaklinga.
Einnig verður gert við þak og lýsing bætt, bæði á þaki og á laugarsvæði.
Hurðarflekum verður skipt út fyrir rennihurðir.
Einnig verður gert við þak og lýsing bætt, bæði á þaki og á laugarsvæði.
Hurðarflekum verður skipt út fyrir rennihurðir.
Nýr sérklefi
Hvað verður gert?
Helstu verkþættir í endurbótunum snúa að:
- Nýr sérklefi með aðstöðu og búnaði fyrir fólk með fötlun. Klefinn verður með tveimur sturtum, salerni og vask.
- Viðgerð á þaki. Fjarlægja þarf að hluta af torfi, hellum og einangrun. Endurnýja þarf þakdúk, einangra aftur og ganga frá yfirborði.
- Bætt veður aðgengi að þaki með nýju þrepi og handlista.
-
Lýsing á þaki og laugarsvæði endurbætt.
-
Hurðaflekar verða fjarlægðir og settar nýjar rennihurðir á sama hátt og við inngangshurðina sem þegar hefur verið endurnýjuð. Ein rennihurðin verður með gönguhurð sem flóttaleið.
-
Timburklæðning á útitröppum verður endurnýjuð ásamt geymsluhurð sem á henni er.
Hvernig gengur?
Framkvæmdartími:
Frá því í apríl, en þá fer fram útboð og val á verktaka, áætlað er að framkvæmdum ljúki í október 2024
Hver koma að verkinu?
Síðast uppfært 03.07.2024