Veðurstofureitur - Nýr skúr Geislavarna ríkisins
Myndir
Hvað verður gert?
Verkið felst í að byggja nýtt 36 m² hús (skúr) að Bústaðavegi 5A, reit Veðurstofu Íslands,
ásamt því að ganga frá girðingum og lóð í samræmi við útboðsgögn.
Húsið mun hýsa mælibúnað á vegum Geislavarna ríkisins og koma í stað núverandi skúrs Geislavarna austan við hús Veðurstofunnar.
Sökklar og botnplata hússins verða staðsteypt en veggir úr timbri klæddum með steingráu báruáli að utan. Þakið er hefðbundið loftræst timburþak með sömu klæðningu úr báruáli og á veggjum.
Miklar kröfur eru um frágang lóðar. Gerðar eru kröfur um að núverandi gróðurþekja verði endurnýtt og að núverandi tré sem eru á lóðinni verði tekin til hliðar meðan á framkvæmdum stendur og gróðursett á lóðinni í samráði við verkkaupa. Aðkomustígur að húsinu frá aðliggjandi göngustíg verður hellulagður með grassteini. Stálrimlagirðing verður í kringum lóðina með hliði við núverandi stíg.
Hvernig gengur?
Desember 2024
Startfundur hefur verið haldinn með verktaka, eftirliti og verkefnastjóra og er verkið komið af stað.
Nóvember 2024
Samið hefur verið við Endurbætur ehf. til framkvæmda á verkinu. Framkvæmdir hefjast á næstu vikum.
Júní 2024
Verið er að vinna hönnunargögn. Í framhaldi af því verður verkið boðið út og vonandi geta framkvæmdir hafist fyrir haustið.