Úlfarsfellsvegur - Endurgerð vegar
Úlfarsfellsvegur
Hvað verður gert?
Um er að ræða endurnýjun á burðarlagi og lögn tvöfaldrar klæðingar (K2) á Úlfarsfellsveg. Breikka þarf veg á nokkrum stöðum. Djúpfræsa skal núverandi yfirborð vegar sem er að stærstum hluta klætt með úthefluðu fræsi og yfirborð vegar síðan heflað og þjappað. Þá skal jafna út 50 mm þykku lagi af mulningi (0-25 mm) og að lokum skal leggja tvöfalda klæðingu á veginn, yfirborðsmerkja hann og koma fyrir kantstikum í vegköntum.
Helstu magntölur eru:
- Djúpfræsun 17.700 m2
- Afrétting og þjöppun undir klæðningu 17.700 m2
- Grúsarfylling 700 m3
- Mulningur 0 – 25 mm 17.700 m2
- Tvöföld klæðing (K2) 17.150 m2
- Yfirborðsmerkingar 8.175 m
- Kantstikur 108 stk
Hvernig gengur?
Desember 2023
Búið er að klæða veginn en vinna við kantstikur og yfirborðsmerkingar verður framkvæmd vorið 2024 þegar veður leyfir.
Október 2023
Búið er að djúpfræsa veginn og verið er að hefla og bera mulning í hann. Gert er ráð fyrir að þessum hluta verksins ljúki í þessari viku og hann verði klæddur í kjölfarið.